Viðskiptabrú

Viðskiptabrú Creditinfo gerir fyrirtækjum kleift að bæta þjónustu sína með því að sjálfvirknivæða umsóknar- og afgreiðsluferla. Lausnin tryggir styttri svartíma og eykur ánægju viðskiptavina án þess að fyrirtæki þurfi að fjárfesta í flóknum tæknilausnum eða eyða dýrmætum tíma í þróun.

Hvernig virkar Viðskiptabrú Creditinfo?

Viðskiptabrú Creditinfo er lausn sem sjálfvirknivæðir umsóknar- og þjónustuferla fyrirtækja á einfaldan og skilvirkan hátt. Hún gerir fyrirtækjum kleift að taka á móti umsóknum, vinna úr þeim með rauntímagögnum og veita sérsniðin svör á örfáum mínútum. Lausnin nýtir gögn og rafræna auðkenningu til að tryggja öryggi og nákvæmni í ákvörðunum. Með rauntímatilkynningum og ítarlegu yfirliti yfir umsóknarferla eykst rekjanleiki og skilvirkni í starfsemi fyrirtækja. Fyrirtæki geta þannig veitt betri og hraðari þjónustu, aukið ánægju viðskiptavina og sparað bæði tíma og kostnað.

Hvað er innifalið í Viðskiptabrú Creditinfo?

Umsóknarvefur fyrir viðskiptavini

  • Umsækjandi fluttur á umsóknarvefinn og til baka með hlekk
  • Þemað viðmót og ferli sem sniðið er að þörfum viðskiptavina
  • Sérsniðin skilaboð/svör við umsóknum

Samþætting við gagnalindir og lausnir

Tilkynningar í rauntíma

  • Viðskiptavinur fær samstundis tilkynningu um nýjar umsóknir
  • Hlekkur á allar forsendur umsóknar inni á þjónustuvef Creditinfo
  • Starfsmannaviðmót sem er aðgengilegt á þjónustuvef Creditinfo
  • Yfirlit yfir allar umsóknir, nýjar og sögulegar, ásamt ítarlegum forsendum umsókna

    Helstu kostir Viðskiptabrúar Creditinfo

    Aukin skilvirkni

    Viðskiptabrúin sparar tíma og kostnað með sjálvirkum ferlum

    Styttri svartími

    Lausnin tryggir skjótari viðbrögð við umsóknum og eykur því tryggð viðskiptavina

    Heildarlausn

    Viðskiptabrúin samþættir gögn og ferla á einum stað

    Stutt innleiðingarferli

    Ekki er þörf á miklum tíma við innleiðingu lausnarinnar

    Algengar spurningar

    No items found.

    Notkunartilfelli

    Umsagnir viðskiptavina

    „[Viðskiptabrúin] sér um þetta allt án þess að við þurfum að koma að því handvirkt. Við fáum allar upplýsingar sem við þurfum, og umsækjandinn klárar fyrstu áreiðanleikakönnunina á skilvirkan hátt.“

    Ásgerður Þórunn Hannesdóttir
    lögfræðingur

    Viðskiptabrúin hefur hjálpað okkur að auka skilvirkni í rekstri með bæði sjálfvirknivæðingu á umsóknarferli viðskiptavina og ákvörðunartöku um viðskiptasambönd. Viðskiptabrúin hefur sömuleiðis stuðlað að jákvæðri upplifun viðskiptavina þar sem svartími umsókna er mun minni en áður.

    Ingibjörg L. Halldórsdóttir
    sérfræðingur í innheimtu og samningaumsjón

    Fréttabréf Creditinfo

    Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
    Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
    Oops! Something went wrong while submitting the form.