Áreiðanleikamat

Allt á einum stað

Áreiðanleikamat Creditinfo gerir tilkynningarskyldum aðilum kleift að kanna áreiðanleika viðskiptamanna sinna með ítarlegum hætti, senda á þá áreiðanleikakönnun sem þeir svara með rafrænni auðkenningu, kanna hvort þeir séu í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla eða á alþjóðlegum þvingunarlistum.

Skráðu þig á fræðslufund um Áreiðanleikamatið sem haldið verður 4.mars.

Uppfyllir lagaskyldur

Með Áreiðanleikamati Creditinfo fær tilkynningarskyldur aðili góða yfirsýn yfir allt það helsta sem honum ber að kanna við mat á áreiðanleika viðskiptamanna sinna skv. lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka nr. 140/2018 og skv. lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023.

Í Áreiðanleikamati Creditinfo geta tilkynningarskyldir aðilar:

  • Óskað eftir rafrænum undirritunum frá viðskiptavinum
  • Sent spurningar um uppruna fjármuna, stjórnmálaleg tengsl og tengsl við áhættusöm ríki
  • Kannað gildandi skráningu fyrirtækis
  • Kannað orðspor viðskiptavinar með fjölmiðlaupplýsingum og dómum tengdum viðkomandi
  • Kannað eignarhald viðskiptavinar til hlítar, bæði raunverulega eigendur samkvæmt RSK og rakið endanlegt eignarhald
  • Kannað félagaþátttöku einstaklings
  • Kannað stjórnmálaleg tengsl einstaklings (PEP)
  • Kannað stöðu einstaklings gagnvart alþjóðlegum þvingunarlistum (Sanctions)
  • Haft yfirlit yfir svör úr áreiðanleikakönnun viðskiptavina ásamt tímastimpli á lokuðu svæði á þjónustuvef Creditinfo
  • Merkt viðskiptavini í réttan áhættuflokk samkvæmt áhættumati
  • Sett lögaðila í Fyrirtækjavakt svo hægt sé að fylgjast með breytingar á högum þess fyrirtækis líkt og breytingar á eignarhaldi, prókúru o.fl.

Kostir Áreiðanleikamats Creditinfo

Áreiðanleg gögn

Creditinfo hefur að geyma stærsta gagnagrunn viðskiptaupplýsinga á Íslandi, áreiðanlegan gagnagrunn yfir stjórnmálaleg tengsl einstaklinga (PEP) og tengingu við alþjóðlega gagnagrunna LexisNexis.

Góð yfirsýn

Nauðsynlegar upplýsingar um raunverulega eigendur, stjórnmálaleg tengsl o.fl. eru aðgengilegar í einu þægilegu viðmóti sem auðvelt er að sækja í eftir þörfum.

Rafræn undirritun

Einstaklingar geta sannað deili á sér með áreiðanlegri rafrænni undirritun í gegnum þjónustuvef Creditinfo.

Upptaka frá rafrænum fundi Creditinfo um Áreiðanleikamat

Umfjöllunarefni fundarins:

  • Hverjar eru skyldur tilkynningarskyldra aðila?
  • Hvaða gagna þurfa tilkynningarskyldir aðilar að afla?
  • Yfirlit yfir Áreiðanleikamat Creditinfo
  • Framtíðarsýn í vöruframboði Creditinfo

Algengar spurningar

No items found.

Notkunartilfelli

Umsagnir viðskiptavina

„Áreiðanleikamat Creditinfo hefur einfaldað okkar verklag við framkvæmd áhættumats á okkar viðskiptavinum og aukið skilvirkni til muna.“

Sara Henný Arnbjörnsdóttir
endurskoðandi og meðeigandi hjá PwC

„Eftir að við fórum að nota Áreiðanleikaskýrslu Creditinfo þurfum við að ónáða viðskiptavini mun minna vegna þess að nauðsynlegar upplýsingar eru þar á einum stað. Við náum þá að minnka hópinn af viðskiptavinum sem við þurfum að kanna nánar og erum með uppfærðar upplýsingar um flesta viðskiptavini okkar hverju sinni.“

Silja Valdemarsdóttir
forstöðumaður á fyrirtækjasviði Arion banka

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.