Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Fjölmiðlavaktin hefur vaktað umfjöllun í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og netmiðlum um árabil og er leiðandi þjónusta á sínu sviði á Íslandi. Fjölbreyttar lausnir Creditinfo á sviði fjölmiðlaupplýsinga nýtast bæði við stýringu orðspors og til að taka upplýstar ákvarðanir í viðskiptum.

Á hverjum degi eru fluttar fjöldinn allur af fréttum á Íslandi í fjölmörgum fjölmiðlum. Ef þú missir af mikilvægri umfjöllun um þitt fyrirtæki í getur það reynst þér dýrkeypt. Sein og óundirbúin viðbrögð við fjölmiðlaumfjöllun eru ófagleg og geta skaðað orðspor fyrirtækja til langs tíma. Með Fjölmiðlavakt Creditinfo er hægt að fylgjast með fjölmiðlaumfjöllun um hvaða fyrirtæki eða málefni sem er. Við sendum þér tölvupóst hvenær sem umfjöllun birtist í útvarpi, sjónvarpi, blöðum, netmiðlum og samfélagsmiðlum. Þannig tryggir þú góða yfirsýn yfir umfjöllun um málefnin sem þig varðar.
Áskrifendur með fréttaskor og/eða innihaldsgreiningu fá sendan tölvupóst eins og þann sem er hér á myndinni þar sem tilgreint er hvaða mikilvægi umfjöllunin hafði og áhrif hennar á orðspor viðkomandi aðila. Þessar upplýsingar má einnig nálgast á þjónustuvef Fjölmiðlavaktarinnar.


„Ein frétt getur haft mikil tilfinningaleg áhrif á fólk en gefur ekki endilega rétta mynd af því hvernig fjölmiðlaumfjöllun er almennt. Þess vegna er gott að hafa Fjölmiðlavaktina sem hlutlausan mælikvarða yfir hvernig fjölmiðlaumfjöllunin er í raun og veru.“
