Markhópalistar

Ertu að hitta í mark?

Creditinfo hefur að geyma stærsta gagnagrunn fyrirtækjaupplýsinga á Íslandi. Á þeim grundvelli nálgast fjöldinn allur af viðskiptavinum Creditinfo upplýsingar til að taka markvissari ákvarðanir í viðskiptum. Hægt er að panta markhópalista yfir fyrirtæki á tilteknum landsvæðum, eftir atvinnugreinum eða stærð sem auðvelda þér að ná athygli réttu aðilanna.

Framúrskarandi fyrirtæki

Listinn inniheldur upplýsingar um Framúrskarandi fyrirtæki 2025 sem er unninn upp úr ársreikningum 2022 til 2024.

  • Nafn og kennitala fyrirtækis
  • Heimilisfang og símanúmer fyrirtækis
  • Nafn framkvæmdastjóra (aðeins fyrir áskrifendur)
  • ISAT atvinnuflokkur fyrirtækis

Verð:

115.000 kr. án vsk.

Hágæða upplýsingar um næstu viðskiptavini

Sigtum út óvirk fyrirtæki

Sérfræðingar Creditinfo hafa unnið sérstaka greiningu á því hvort fyrirtæki séu í virkri starfsemi eða ekki. Í hlutafélagaskrá eru rúmlega 49.100 lögaðilar en samkvæmt greiningu Creditinfo eru aðeins um 21.850 af þeim í virkri starfsemi, eða aðeins 45% allra fyrirtækja í hlutafélagaskrá. Allir markhópalistar Creditinfo eru sniðnir þannig að þeir sýna aðeins fyrirtæki í virkri starfsemi samkvæmt skilgreiningu Creditinfo.

Markhópalistar án áhættusamra fyrirtækja

Ef markhópalistar eru sóttir í þeim tilgangi að afla nýrra viðskiptavina er mikilvægt að hafa listana hnitmiðaða. Það getur reynst kostnaðarsamt að eyða óþarfa tíma í öflun viðskiptavina sem hafa ekki fjárhagslega burði til að halda uppi viðskiptasambandi til lengri tíma. Með Lánshæfismati Creditinfo er hægt að sníða markhópalistann enn frekar og afmarka listann aðeins við fyrirtæki sem hafa góða lánshæfiseinkunn. Fyrirtæki sem eru líkleg til að fara á vanskilaskrá eða eru þar nú þegar verða því ekki tekin með og eftir standa aðeins fyrirtæki í virkri starfsemi sem sýna fram á fjárhagslegt heilbrigði. Þannig getur þú tryggt að þú nálgist sterkasta markhópinn hverju sinni.

Algengar spurningar

Listi yfir ÍSAT atvinnuflokka
Á hvaða gögnum byggja markhópalistar Creditinfo?

Notkunartilfelli

Umsagnir viðskiptavina

„Markhópalistarnir frá Creditinfo hafa reynst okkur afar vel í sölu- og markaðsstarfi. Það var fljótlegt og einfalt að fá markhópalistana í hendurnar og allar upplýsingar voru skýrt settar fram.“

Eva Eiríksdóttir
Marketing and Brand Experience FlyOver Iceland

Fréttabréf Creditinfo

Fáðu nýjustu fréttir af lausnum og þjónustu Creditinfo í tölvupósti
Þú hefur verið skráður í fréttabréf hjá Creditinfo
Oops! Something went wrong while submitting the form.