Þekktu viðskiptavininn
Betri ákvarðanir
Gagnalausnir
Markaðslausnir
Ársreikningar geyma mikilvægar upplýsingar um fjárhagsstöðu fyrirtækja og eru því gagnlegir við mat á stöðu þeirra.
Í boði er að sækja skönnuð frumrit af ársreikningum frá fyrirtækjaskrá að kostnaðarlausu, eða að fá fimm ára samanburð sem hægt er að skoða á vef eða taka út á Excel formati.

Áreiðanlegustu upplýsingar um rekstur fyrirtækja er oftast að finna í ársreikningum þeirra. Með upplýsingum úr ársreikningi er hægt að leggja mat á það hversu vel rekstur fyrirtækis hefur gengið síðustu ár, stærð fyrirtækisins, skuldsetningu og margt fleira.
Creditinfo hefur að geyma stærsta safn viðskiptaupplýsinga á Íslandi en á meðal þeirra eru upplýsingar úr ársreikningum íslenskra fyrirtækja allt aftur til ársins 1995. Ársreikningagrunnur Creditinfo hefur að geyma rúmlega 600.000 ársreikninga sem hægt er að sækja með fjölbreyttum hætti bæði á þjónustuvef Creditinfo og í gegnum vefþjónustu.
Áskrifendur geta á þjónustuvefnum nálgast innslegna ársreikninga ásamt gögnum frá síðustu fimm árum á undan með myndrænni framsetningu á helstu lykiltölum. Hægt er að hlaða niður upplýsingunum á Excel formati sem auðveldar frekari úrvinnslu á þeim.
Áskrifendur geta sótt skönnuð frumrit af ársreikningum frá fyrirtækjaskrá inn á þjónustuvefnum.
Á þjónustuvefnum býðst áskrifendum að fá senda tilkynningu þegar nýjar upplýsingar berast varðandi tiltekið félag, eins og skil á nýjum ársreikningi, breytingar á skráningu í hlutafélagaskrá eða eignarhaldi þess. Þjónustan er innifalin í áskriftinni og eru ekki takmörk á því hversu mörg fyrirtæki eru vöktuð.


