
Framúrskarandi árangur er langhlaup
Í 17 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Markviss undirbúningur og þrotlaus vinna liggur að baki framúrskarandi árangri. Vottun Framúrskarandi fyrirtækja er mikilvægur þáttur í markaðssókn þeirra sem vilja efla traust viðskiptavina og samstarfsaðila. Það er því eftirsóknarvert að skara fram úr.
Panta vottun
Afreksfólk atvinnulífsins
Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Aðeins afreksfólk atvinnulífsins stenst þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja og þær gefa vísbendingar um að þau séu líklegri til að ná árangri og standast álag en önnur.
Skoða skilyrði →

Framúrskarandi fyrirtæki 2025
Þann 30. október 2025 afhendi Creditinfo Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir rekstrarárið 2024. Sjáðu myndband frá viðburðinum og myndir.
Sjá nánar →Hvatningarverðlaun um sjálfbærni
Við trúum því að Framúrskarandi fyrirtæki þurfi að huga að sjálfbærni með markvissum hætti. Hvatningarverðlaununum um sjálfbærni er ætlað að draga fram fyrirmyndir sem geta verið öðrum hvatning á þessum sviðum. Verðlaunin eru veitt á sama tíma og listinn er gerður opinber ár hvert.
Sjá meira →




Skilyrðin
- Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
- Fyrirtækið er virkt samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
- Rekstrartekjur eru að lágmarki 60 milljónir króna
- Rekstrarhagnaður (EBIT) er hærri en 0
- Jákvæð ársniðurstaða síðustu þriggja ára
- Eiginfjárhlutfall er að minnsta kosti 20%
- Ársreikningi skal skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag
- Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárin 2023-2025
- Framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
- Eignir að minnsta kosti 120 milljónir króna
- Fyrirtæki með að minnsta kosti 2 milljarða í rekstrartekjur þurfa að svara sjálfbærnispurningum
- Félög sem falla undir lög um kynjakvóta þurfa að uppfylla kynjahlutföll í aðalstjórn (nýtt skilyrði)
Pantaðu vottunina
og þú færð

Viðurkenningarskjal
Innrammað viðurkenningarskjal sem notað er sem vitnisburður um framúrskarandi árangur. Einnig kemur viðurkenningin á ensku og í tölvutæku formi.
Sýnishorn ›
Staðfestingarskjal
Staðfestingarskjal um framúrskarandi árangur í rekstri. Skjalið sýnir forsendur fyrir valinu og er mikið notað í samskiptum við erlenda viðskiptavini og birgja.
Sýnishorn ›
Samanburðarskýrsla
Við berum saman þitt fyrirtæki við þína atvinnugrein. Í skýrslunni koma fram lykiltölur úr ársreikningum fyrirtækja. Skýrsluna er hægt að nota til að bera saman fyrirtækið við önnur fyrirtæki.
Sýnishorn ›Listi yfir Framúrskarandi fyrirtæki
Listi yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2025 ásamt lykiltölum í Excel-skjali.

Merking á ja.is
Merking við skráningu fyrirtækisins á ja.is sem sýnir stöðu þess sem Framúrskarandi fyrirtæki.
Sýnishorn ›• Viðurkenningarskjal í ramma og pdf
• Listi yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2025 og lykiltölur
• Staðfestingarskjal á íslensku (pdf skjal)
• Staðfestingarskjal á ensku (pdf skjal)
• Samanburðarskýrsla við atvinnugrein
• Leyfi til að nota merkið í kynningarefni (jpeg, png)
• Merkingar í skýrslum Creditinfo
• Merking við skráningu fyrirtækis hjá ja.is
Merking á Vísir.is
Sérstakur vefur á visir.is hefur verið opnaður sem er helgaður Framúrskarandi fyrirtækjum. Á vefnum er hægt að lesa viðtöl við forsvarsmenn Framúrskarandi fyrirtækja ásamt áhugaverðum fróðleik um Framúrskarandi fyrirtæki.
Framúrskarandi fyrirtækjum býðst að bæta við sérstakri merkingu á vef Vísis. Merkingin verður sýnileg á forsíðu visir.is í kringum viðburðinn 30. október og í 12 mánuði á sérvefnum.
VERÐ
26.900 kr.
án vsk.
til viðbótar við vottunina
Hvatningarverðlaun Creditinfo og Festu fyrir framtak á sviði sjálfbærni 2025
Brim
Árið 2025 hlaut Brim hf. hvatningarverðlaun um framúrskarandi framtak á sviði sjálfbærni.
Í umsögn dómnefndar segir að félagið hefur sýnt með skýrum hætti hvernig sjálfbærni og fjárhagslegur árangur eru ekki aðskildir þættir heldur samtvinnaðir drifkraftar í rekstri fyrirtækisins.
Verkefnið sem hlotið hefur viðurkenninguna er 33 milljarða króna endurfjármögnun með sambankaláni í samstarfi við þrjár alþjóðlegar fjármálastofnanir, Rabobank, Nordea og DNB. Í lánaskilmálum félagsins eru innbyggðir hvatar sem stuðla að aukinni áherslu á sjálfbærni sem byggja á mælanlegum árangursvísum á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta (UFS), sem ákvarða lánakjörin í samræmi við stefnu og markmið Brims.
Árangursvísarnir taka meðal annars til losunar gróðurhúsalofttegunda í tengslum við veiðar, þar sem Brim hefur verið frumkvöðull í gagnsærri upplýsingagjöf. Hvatar lánasamningsins styðja jafnframt við markmið félagsins um aukna verðmætasköpun, lægra kolefnisspor og bætt öryggi í framleiðslu og dreifingu afurða félagsins.
Brim hefur birt sjálfbærnigögn samkvæmt GRI staðli frá árinu 2017 og nýverið birt CSRD gagnapakka í sjálfbærni- og ársskýrslu félagsins, sem tryggir samanburðarhæfar og sannreynanlegar upplýsingar um sjálfbærni í takt við nýjar kröfur Evrópusambandsins.

Dómnefndin telur verkefni Brims vera til fyrirmyndar enda sýnir það á áþreifanlegan hátt hvernig árangur í sjálfbærni er nátengdur fjárhagslegum hvötum og árangri félagsins. Það er ánægjulegt að sjá að hjá Brim er sjálfbærni orðin samofin daglegum rekstri, stefnu og framtíðarsýn félagsins.
Hvatningarverðlaunin eru veitt samhliða birtingu lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2025. Dómnefnd vann úr lista yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem sýndu fram á skýra stefnu um samfélagsábyrgð, sjálfbærni, kynjajafnrétti og réttindi starfsfólks. Verðlaunin eru unnin í samstarfi við Festu - miðstöð um sjálfbærni.
Í dómnefnd sátu Erla Ósk Ásgeirsdóttir formaður dómnefndar, fulltrúi Festu - miðstöðvar um sjálfbærni, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, fulltrúi Háskólans í Reykjavík og Ragnheiður Geirsdóttir, fulltrúi Stúdentaráðs Háskóla Íslands.